1.7 Stuðla að aukinni notkun og vottun íslenskra skógarafurða í byggingariðnaði

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Aðgerðin felur í sér að styrkja stöðu íslenskra skógarafurða á markaði með því að vinna að vottunum, staðlavinnu og aukinni fræðslu. Virkja umræðuhóp hagaðila til að tryggja samræmi í gæðum, frekari kynningar til hagaðila eins og arkitekta og verkfræðinga, og markviss stuðningur við innleiðingu vottunar. Samhliða verður efld kennsla í flokkun timburs, aukið samstarf við háskóla og aðgengileg fræðsla fyrir fyrirtæki til að fylgja reglugerðum.

Áhersla verður lögð á að skilgreina flokkunar- og gæðamat þannig að gæði íslensks timburs (t.d. ösp og lerki) standist viðmið og verði ekki lægri en hefðbundinna trjátegunda í byggingariðnaði (greni og fura). Einnig verður stuðlað að innviðauppbyggingu, m.a. með stuðningi við betri þurrkunaraðstöðu, sögunarmyllur og kerfisbundna skráningu á tegundum og magni innan skóga.

Markmið: Markmiðið með aðgerðinni er að auka notkun íslenskra skógarafurða í byggingariðnaði og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra með alþjóðlegum vottunum eins og FSC og CE. Tryggja að íslenskt timbur uppfylli viðeigandi gæðakröfur og flokkunarkerfi þannig að það sé raunhæfur valkostur í byggingariðnaði. Einnig er stefnt að því að efla þekkingu og færni meðal fagaðila og fyrirtækja í tengslum við notkun og úrvinnslu timburs. Að lokum er lagt upp með að skapa meiri virðisaukningu í íslenskri skógarvinnslu með betri tengingu við byggingariðnað og hönnuði.

Ábyrgð: Bændasamtök Íslands, Trétækniráðgjöf, HMS, Iðan fræðslusetur, Land og skógarÁbyrgð: Bændasamtök Íslands, Trétækniráðgjöf, HMS, Iðan fræðslusetur, Land og skógar

Tími: 2025-2030

Lokaafurð:

Þróa leiðbeiningar aðgengilegt fræðsluefni sem inniheldur leiðbeiningar um flokkun, vottun og notkun íslensks timburs í byggingariðnaði. Skýrar kröfur fyrir vottun íslenskra skógarafurða, þar með talið FSC-vottun og CE-merkingar. Kortleggja þörf fyrir innviðauppbyggingu, s.s. þurrkunaraðstöðu og sögunarmyllur. Markviss vinna við að fjölga vottaðri íslenskri skógarvöru á markaði, með áherslu á sjálfbærni og nýtingu í byggingariðnaðinum.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is