1.9 Nýsköpun í náttúrulegum lausnum og efnum

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Markmið þessarar aðgerðar er að stuðla að þróun og innleiðingu nýsköpunar í náttúrulegum lausnum og efnum innan mannvirkjageirans. Áhersla verður lögð á efni og lausnir sem auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr nýtingu hráefna og samræmast áherslum hringrásarhagkerfisins. Sérstök áhersla verður jafnframt lögð á að styðja við lágkolefnislausnir sem taka á umhverfisáskorunum sem byggingariðnaðurinn stendur frammi fyrir. Í samvinnu við hagaðila og vísindasamfélagið mun þessi aðgerð stuðla að mótun leiðbeininga og upplýsinga sem gera aðilum kleift að nýta náttúruleg efni og lausnir markvisst í verkefnum sínum og sýna fram á mögulegan ávinning þeirra í sjálfbærri mannvirkjagerð við íslenskar aðstæður.

Markmið: Að stuðla að innleiðingu nýsköpunar í náttúrulegum efnum og lausnum með leiðbeiningum sem auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr hráefnanotkun og styðja við lágkolefnislausnir í átt að sjálfbæru byggðu umhverfi.

Ábyrgð: HMS, Grænni byggð, UOS

Tími: 2025-2027

Staðan september 2025

Aðgerð í vinnslu.

Ísland tekur virkan þátt í verkefni Nordic Sustainable Construction (NSC) 2025-2027, sem hefur það markmið að efla samstarf og miðlun þekkingar milli stjórnvalda, atvinnulífs og sérfræðinga á Norðurlöndunum. Með verkefninu er mótuð sameiginleg sýn Norðurlandanna um að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030.

Ísland leiðir hluta loftslagsvinnunnar innan NSC, sem snýr að  lífsferilsgreiningum, lágkolefnislausnum og loftslagsaðlögun.

Í tengslum við aðgerð 1.9 er sérstaklega horft til Verkefnis 2 í íslenska vinnupakkanum – Byggingarvörur, sem miðar að því að styðja við nýsköpun og þróun lágkolefnislausna og annarra sjálfbærra aðferða í byggingariðnaði.

Lokaafurð: Hagnýtar og skýrar upplýsingar og verkfæri fyrir byggingariðnaðinn sem auðvelda innleiðingu náttúrulegra efna og lausna með áherslu á lágkolefnislausnir og líffræðilega fjölbreytni.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is