Search
Close this search box.

2.3. Koma á samtali milli vetnis- og rafeldsneytisframleiðenda, vinnuvélaeigenda og fleiri um orkuskipti á vinnuvélum

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Skoða þarf hvort og hvernig væri unnt að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis vinnuvéla í byggingariðnaði með því nýta innlenda vetnis- og rafeldsneytisframleiðslu.

Markmið: Að greina tækifæri til orkuskipta á vinnuvélum í byggingariðnaði með vetnis- og rafeldsneyti.

Ábyrgð: SI.

Tími: 2022.

Staðan desember 2023

Aðgerð lokið.

Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í eru meðal annars: 

  • Fundur á milli Vetnis, sem er fyrirtæki sem er að þróa vetnislausnir fyrir stærri ökutæki, og Félags vinnuvélaeigenda. 
  • Félagsfundur Mannvirkis – félags verktaka og Félags vinnuvélaeigenda um orkuskipti í vinnuvélum og stærri ökutækjum, 30. nóvember 2022. Þar komu fram upplýsingar frá innlendum birgjum auk þróunaraðila vetnis um möguleika til að nýta vetnis- og rafeldsneytisframleiðslu í vinnuvélum í byggingariðnaði. 

Á árinu 2023 var sérstök orkuskiptanefnd fyrir vinnuvélar í byggingariðnaði mynduð innan SI. Að svo stöddu er mat nefndarinnar að orkuskipti séu ekki tímabær í vinnuvélum bæði vegna skorts á innviðum og framboði á tækjum sem bjóða upp á sömu afköst og jarðeldsneytistæki. Telur nefndin að líklegra sé til árangurs að leggja áherslu á að draga úr losun á byggingarstöðum t.d. með sparsömum díselvélum en þær eru nú flestar þar að auki með góðum mengunarhreinsibúnaði. Vegna skorts á innviðum fyrir raftengingu stærri vinnuvéla er um þessar mundir frekar horft til vetnisknúinna vinnuvéla.

Á árinu 2023 voru veittir styrkir úr Orkusjóði til nokkurra fyrirtækja sem vinna í mannvirkjagerð, fyrir kaup á stórri vinnuvél og nokkrum trukkum sem ganga fyrir vistvænni, innlendum orkugjöfum.  

Þá má geta þess að í tengslum við vinnupakka 4 í norræna samstarfsverkefninu Nordic Sustainable Construction hefur verið komið á norrænu samstarfsneti sem samanstendur af hagsmunaaðilum byggingargeirans. Samstarfsnetið er notað til að afla upplýsinga um nýjungar, lausnir og spár um þróun á þessu sviði. Hér er hægt að skrá sig í samstarfsnetið: http://eepurl.com/imRdFM

Lokaafurð aðgerðar

Sérstök orkuskiptanefnd fyrir vinnuvélar í byggingariðnaði hefur verið mynduð innan SI sem heldur samtalinu gangandi og fylgist með þróun mála.

Norrænt samstarfsnetum nýjungar, lausnir og spár um þróun á þessu sviði. Hægt er að skrá sig til þátttöku hér:  http://eepurl.com/imRdFM .

Annað tengt efni
Frétt um fund um orkuskipti í stærri vinnuvélum, 30. nóvember 2022.
Grein frá formanni Mannvirkis – félags verktaka um orkuskiptin, 2. desember 2022.
Grein í Bændablaðinu um þróun vetnistækninnar fyrir vinnuvélar, Vetnistæknin springur út, 28. febrúar 2023. 
Heimasíða Grænni byggðar, sem vinnur að losunarlausum verkstöðum í verkefninu Nordic Sustainable Constructions. 

Tengiliður

Bjartmar Steinn Guðjónsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði, bjartmar@si.is
Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar, arora@graennibyggd.is