3.14. Útfærsla á útgáfu orkuskírteina

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Þróa og innleiða ferli fyrir útgáfu orkuskírteina sem byggist á skilgreindum kröfum um orkuflokkun og orkunýtingu mannvirkja. Ferlið skal vera í samræmi við ákvæði EPBD (Energy Performance of Buildings Directive) og Taxonomy-kröfur Evrópusambandsins. Lagt verður upp með að greina hvernig slíkt kerfi hefur verið útfært í öðrum löndum og nýta erlendar fyrirmyndir til að þróa íslenskt fyrirkomulag. Þessi aðgerð kallar jafnframt á uppfærslu á lögum og reglugerðum til að tryggja innleiðingu og samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.

Markmið: Að leggja grunn að markvissri innleiðingu og framkvæmd orkuskírteina í íslensku regluverki.

Ábyrgð: HMS, FRN, UOS

Tími: 2025-2028

Lokaafurð:  Skilgreint ferli fyrir útgáfu orkuskírteina á Íslandi, í samræmi við kröfur EPBD-tilskipunarinnar og flokkunarreglugerðar (taxonomy). Þetta felur í sér hvaða uppfærslur á lögum og reglugerðum þarf til.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is