4.12.  Hagnýtar leiðbeiningar um endurnotkun byggingarvara

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Endurnotkun byggingarvara er mikilvægur þáttur í að draga úr úrgangi og stuðla að sjálfbærni í byggingargeiranum. Þróun leiðbeininga um hvernig endurnota má algengar byggingarvörur í samræmi við gildandi byggingarreglugerðir er nauðsynleg til að auka notkun og samræmi. Í leiðbeiningunum verður fjallað um hvaða byggingarvörur eru hæfar til endurnotkunar og hvaða gögnum þarf að safna fyrir þau efni sem ekki uppfylla núverandi kröfur til að þau verði viðurkennd til notkunar.

Í leiðbeiningunum verður einnig fjallað um áhættuna sem fylgir endurnotkun á ýmsum byggingarvörum, gömlum sem nýjum. Reynsla frá öðrum verkefnum, hérlendis og erlendis, verður tekin til greina við gerð leiðbeininganna.

Markmið: Að auka hagnýta þekkingu um endurnotkun byggingarvara.

Ábyrgð: Grænni byggð, HMS, UOS

Tími: 2025-2026

Staðan júní 2026

Aðgerð lokið.

Grænni byggð gaf út Handbók um endurnotkun, sem tekin var saman sem leiðarvísir um fyrstu skref fyrir þau sem huga að sjálfbæru vali og notkun á byggingavörum. Áhersla er lögð á möguleika til endurnotkunar, hagnýt ráð og einnig hindranir á sviði reglugerða, öryggis og heilsuverndar. Auk þess er fjallað um hvernig varan hentar til endurvinnslu og mögulegan sparnað í kolefnislosun.

Lokaafurð aðgerðar

Handbókin er aðgengileg bæði á íslensku og ensku á heimasíðu Grænni byggðar:

Handbókin á íslensku

Handbókin á ensku

Einnig birti Grænni byggð á heimasíðu sinni lista yfir efni, ásamt möguleikum á endurnotkun þeirra og hættum sem fylgja endurnotkun:

Listinn á heimasíðu Grænni byggðar

Tengiliður

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is