5.1.13 Samræmdar leiðbeiningar og fræðsla um lífsferilsgreiningar

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Aðgerðin miðar að því að samræma kröfur og aðferðir fyrir lífsferilsgreiningar (LCA) á Íslandi við alþjóðlegar og norrænar reglur og staðla, með áherslu á Evrópureglugerð (EPBD). Þetta felur í sér samanburð á núverandi reglum, kröfum og stöðlum, ásamt þróun ítarlegra og notendavænna leiðbeininga um framkvæmd LCA.

Verkefnið mun einnig innihalda sýnidæmi af raunverulegum greiningum til að auðvelda markaðnum innleiðingu og skilning á aðferðafræðinni. Aðgerðin felur í sér fræðslu og kynningu á leiðbeiningunum til að styðja við byggingaraðila og hönnuði í notkun LCA, ásamt nýtingu umhverfisyfirlýsinga (EPD). Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja að íslenskar kröfur séu í takt við þróun á Norðurlöndum og í Evrópu.

Markmið: Að auka skilning og notkun á LCA-greiningum meðal byggingaraðila og hönnuða, stuðla að samanburðarhæfi greininga og tryggja aðferðir sem samræmast alþjóðlegum og norrænum stöðlum.

Ábyrgð: HMS

Tími: 2025-2027

Lokaafurð: Útgáfa leiðbeininga um framkvæmd LCA-greininga, ásamt stuðningsgögnum. Uppfærðar kröfur og aðferðir sem fylgja alþjóðlegum stöðlum og viðmiðum. Leiðbeiningarnar verða kynntar og gerðar aðgengilegar fyrir hagaðila í mannvirkjageiranum.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is