5.1.6. Skilgreina mannvirkjaflokka, mannvirkjaverkefni og grunnviðmið fyrir kolefnisspor þeirra

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Í fyrstu verði viðmiðin byggð á gagnaöflun úr íslenskum og erlendum greiningum.

Markmið: Að auka þekkingu á loftslagsvænum verkefnum og lausnum. Að auðvelda markmiðasetningu um samdrátt í losun í verkefnum.

Ábyrgð: Innviðaráðuneyti og HMS.

Tími: 2023.

Staðan júlí 2026

Aðgerð lokið.

HMS hefur lokið aðgerðinni með útgáfu fyrstu viðmiðunargilda fyrir kolefnisspor nýbygginga á Íslandi.

Viðmiðunargildin byggja á 106 lífsferilsgreiningum (LCA) fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem bárust HMS eftir að krafa um skil á lífsferilsgreiningum tók gildi í byggingarreglugerð 1. september 2025.

Markmið aðgerðarinnar var að skilgreina grunnviðmið fyrir kolefnisspor mismunandi mannvirkjaflokka og skapa þannig sameiginlegan grunn fyrir samanburð, markmiðasetningu og áframhaldandi þróun í átt að vistvænni mannvirkjagerð. Viðmiðunargildin auka gagnsæi um kolefnisspor nýbygginga og sýna jafnframt að veruleg tækifæri eru til staðar til að draga úr losun með markvissri hönnun, efnisvali og bættri nýtingu bygginga.

Niðurstöðurnar verða nýttar sem grunnur fyrir næstu skref í innleiðingu lífsferilsgreininga á Íslandi, þar á meðal undirbúning hámarksgilda fyrir kolefnisspor nýbygginga.

Varðandi önnur mannvirki, samkvæmt skýrslu sem unnin var af EFLU fyrir Vegagerðina er grunnviðmið fyrir brýr 1.1 – 1.4 tCo2/m2.

Lokaafurð aðgerðar

Útgáfa HMS á viðmiðunargildum fyrir kolefnisspor nýbygginga á Íslandi, byggð á fyrstu íslensku LCA gögnunum sem safnast hafa eftir innleiðingu kröfu um lífsferilsgreiningar í byggingarreglugerð. Viðmiðunargildin eru aðgengileg á vef HMS ásamt nánari greiningu á niðurstöðunum.

Frétt um útgáfuna

Ítarlegri greinargerð

Annað tengt efni

Leiðbeiningar um lífsferilsgreiningar fyrir byggingar í Danmörku.

Leiðbeiningar um lífsferilsgreiningar fyrir byggingar í Svíþjóð.

Danmörk hefur innleitt kröfu um að nýbyggingar losi undir ákveðnum grunnviðmiðum frá janúar 2023 (limit values). Hér er lesefni í tengslum við þær breytingar.

Danskt örmyndband (með texta) um grunnviðmið fyrir kolefnisspor bygginga (limit values).

Samnorrænt samstarfsverkefni um vistvæna mannvirkjagerð: Nordic Sustainable Constructions

Tengiliður

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is