5.1.7. Skilgreina kolefnishlutlausa byggingu fyrir íslenskar aðstæður

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Skilgreining á kolefnishlutlausri byggingu (e. zero emission building) ætti að byggjast á aðlögun á erlendum skilgreiningum fyrir íslenskar aðstæður, lífsferilsgreiningum og stöðluðum aðferðum til kolefnisjöfnunar.

Markmið: Að aðlaga erlendar skilgreiningar að íslenskum aðstæðum. Að setja fram hvetjandi leið fyrir vistvæna mannvirkjagerð.

Ábyrgð: Grænni byggð.

Tími: 2023.

Staðan ágúst 2023

Aðgerð er í vinnslu. 

Verkefnið fékk styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði við úthlutun fyrir árið 2023 og 2024. 

Ljóst er að vinnslu þess mun ekki ljúka árið 2023 eins og áætlað var í Vegvísinum.

Kannað er hvernig umhverfisáhrif bygginga eru metin og hvernig þau eru metin. Við skoðum skilgreininguna á kolefnishlutlausri byggingu við íslenskar aðstæður og hvernig hægt er að ná kolefnishlutleysi í mismunandi lífsferilsfösum og byggingarhlutum.

Lokaafurð aðgerðar

  • Skilgreining á kolefnishlutlausri byggingu.
  • Yfirfærsla skilgreininga á íslenskar aðstæður þar sem meðal annars er tekið tillit til raforku, byggingarmenningar, auðlinda, loftslags og markaðsaðstæðna.
  • Leiðbeiningar um hvernig ná skal kolefnishlutleysi á hverjum byggingarfasa á lífsferli byggingar.
  • Hvernig og hve mikið hægt er að kolefnisjafna til að ná kolefnishlutleysi.

Annað tengt efni

Skýrslan sem var unnin fyrir Ask er á heimasíðu Grænni byggðar: https://www.graennibyggd.is/kolefnishlutlausbygging 

Tengiliður

Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar, arora@graennibyggd.is
Elín Þórólfsdóttir, sérfræðingur í vistvænni mannvirkjagerð, elin.thorolfsdottir@hms.is