5.2.3. Umhverfisvottaðar byggingar skráðar í Mannvirkjaskrá HMS

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Í uppbyggingu Mannvirkjaskrár HMS verður gert ráð fyrir því að skráð verði sérstaklega ef bygging er umhverfisvottuð og hvers konar vottun um er að ræða.

Markmið:Að fá yfirsýn yfir hvaða byggingar eru umhverfisvottaðar, fjölda þeirra á hverjum tíma og hvernig þróuninni er háttað.

Ábyrgð: HMS.

Tími: 2022-2023.

Staðan ágúst 2023

Aðgerð hafin.

Verið er að byggja upp mannvirkjaskrá með markvissum hætti, þannig að mögulegt verði að þróa lausn sem felst í því að umhverfisvottun mannvirkja verði skráð sérstaklega. Þar á meðal er unnið að þróun viðmóts svo unnt verði að skila inn rafrænum hönnunargögnum þegar sótt er um byggingarleyfi.

Lokaafurð aðgerðar

Lokaafurð aðgerðar felst í því að hægt verði af kalla fram í mannvirkjaskrá yfirlit yfir fjölda umhverfisvottaðra bygginga á Íslandi á hverjum tíma.

Annað tengt efni

Mannvirkjaskrá er ætlað að veita áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð, tegundir húsnæðis, notkunarsvið, framvindu á framkvæmdartíma og stöðuna á húsnæðismarkaði. Mannvirkjaskrá geymir gögn um byggingar á Íslandi, byggingarhluta og eiginleika þeirra, ásamt byggingarleyfismálum og úttektum tengt þeim. Mannvirkjaskrá nýtir meðal annars gögn úr fasteignaskrá ásamt gögnum frá sveitarfélögum um byggingaleyfismál svo sem byggingarleyfisumsóknir, útgefin byggingarleyfi og stöðu þeirra. Til staðar er fjöldi spennandi þróunartækifæra til að efla mannvirkjaskrá og rekjanleika mannvirkjagerðar til framtíðar, til dæmis varðandi móttöku rafrænna hönnunargagna og vistun mikilvægra upplýsinga á borð við orkunýtingu, vottanir, tjón, viðhald og fleira sem gerist á líftíma mannvirkja.

Í lok árs 2022 var mælaborð fyrir íbúðir í byggingu formlega opnað, þar sem hægt er að nálgast samantekin gögn og talningar fyrir íbúðarhúsnæði úr Mannvirkjaskrá HMS. Í mælaborðinu eru birtar upplýsingar um íbúðir í byggingu, byggingaráform og fullbúnar íbúðir, eftir tegund húsnæðis, stærðarflokkun og framvindu. Sjá nánar Mælaborð íbúða í byggingu.

 

Tengiliður

Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, thora.thorgeirsdottir@hms.is