Staðan apríl 2026
Aðgerð lokið.
Ástæða þótti til að útfæra námskeið og annað fræðsluefni um viðmið Svansins fyrir endurbætur (nr. 102, útgáfa 2). Markmiðið var að taka heildrænt á viðmiðunum þar sem bæði kröfurnar voru kynntar en einnig var farið ítarlega í það hvernig ætti t.d. að lesa úr viðmiðaskjalinu og leita að vörum sem leyfðar eru í Svansvottuð hús.
Fyrsta námskeiðið var haldið í samstarfi við IÐAN fræðslusetur í febrúar 2026 og er stefnt að því að halda fleiri slík námskeið. Samhliða námskeiðinu voru unnar leiðbeiningar fyrir viðmiðin en þeim er ætlað að vera hjálpartæki fyrir umsækjendur sem vinna að Svansvottuðum endurbótum. Leiðbeiningarnar eru yfirlit yfir allar kröfurnar þar sem búið er að íslenska textann ásamt ítarefni, þær verða uppfærðar reglulega og birtar á heimasíðu Svansins www.svanurinn.is.
Auk námskeiðisins og leiðbeininganna var haldið málþing um Svansvottaðar byggingar í mars 2026 þar sem tilgangurinn var að fá aðila saman að borðinu sem vinna að slíkum verkefnum til að deila reynslu og hjálpast að. Á málþinginu voru erindi sem fjölluðu m.a. um útboðsgögn, flóknar kröfur, og efnisskráningar. Einnig var haldinn sérstakur fræðslufundur um kröfur Svansins fyrir FSC og PEFC vottanir á timbri og bambus í apríl 2026 en sú krafa hefur þótt sérstaklega flókin og því þótti mikilvægt að styðja við bæði umsækjendur og söluaðila sem koma að þeirri kröfu bæði í nýbyggingum og endurbótum.
Lokaafurð: Námskeið og fræðsluefni um umhverfisvottaðar endurbætur.
Minnisblað frá Umhverfis- og orkustofnun. BGF – aðgerð 5.2.9 Fræðsla og hvatar fyrir umhverfisvottaðar endurbætur
Tengiliður:
Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is