5.3.4. Tillaga að endurskoðaðri landsskipulagsstefnu 2015-2026 lögð fram og samþykkt

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Hluti af þeirri tillögu fjallar um loftslagsmiðað skipulag, með markmiðum og aðgerðum sem miða meðal annars að því að skipulag byggðar, samgangna og landnotkunar stuðli að kolefnishlutleysi.

Markmið: Að setja fram stefnu og aðgerðir sem vinna að loftslagsmálum við skipulagsgerð.

Ábyrgð: Innviðaráðuneyti og Skipulagsstofnun.

Tími: 2022-2023.

Staðan maí 2024

Aðgerð lokið

Landsskipulagsstefna ásamt aðgerðaáætlun samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti þann 16. maí, þingsályktun um landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Þingsályktunum landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028 ásamt nefndaráliti með breytingartillögum.

Er þetta í annað sinn sem landsskipulagsstefna er samþykkt en hún leysir af hólmi Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem tók gildi árið 2016, þá fyrsta heildstæða stefna um skipulagsmál á landsvísu. Landsskipulagsstefna felur í sér samræmda stefnu ríkisins í skipulagsmálum fyrir landið í heild og tekur til landsins alls og haf- og strandsvæða.

Landsskipulagsstefna
Í nýsamþykktri þingsályktun um landsskipulagsstefnu eru sett fram þrjú markmið stjórnvalda í skipulagsmálum, sem öll byggja á sjálfbærri þróun: 

A. Markmið um vernd umhverfis og náttúru

B. Markmið um velsæld samfélags

C. Markmið um samkeppnishæft atvinnulíf

Undir hverju markmiði eru settar fram áherslur ásamt tilmælum um framfylgd þeirra fyrir skipulagsgerð á miðhálendi, í dreifbýli, í þéttbýli og á haf- og strandsvæðum.

Áherslurnar byggja á þeim lykilviðfangsefnum sem innviðaráðherra lagði til grundvallar við mótun stefnunnar, til að takast á við þær áskoranir sem við blasa á sviði skipulagsmála. Lykilviðfangsefni þingsályktunar um landsskipulagsstefnu eru eftirfarandi:

  1. Viðbrögðum við loftslagsbreytingum.
  2. Jafnvægi í uppbyggingu húsnæðis og lífsgæða í byggðu umhverfi.
  3. Uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra innviða.
  4. Landnotkun í dreifbýli.
  5. Landnotkun á miðhálendi Íslands.
  6. Orkuskiptum í samgöngum og fjölbreyttum ferðamáta.
  7. Skipulagi haf- og strandsvæða.
  8. Skipulagi vindorku.
  9. Vernd líffræðilegrar fjölbreytni.

 

Aðgerðaáætlun

Landsskipulagsstefnu er fyrst og fremst framfylgt með skipulagsgerð sveitarfélaga, sem skulu samkvæmt skipulagslögum byggja á stefnunni við gerð skipulagsáætlana. Auk þess er sett fram aðgerðaráætlun þar sem lagðar eru fram 19 aðgerðir sem tengdar eru áherslum stefnunnar og er ætlað að ná fram markmiðum hennar. Aðgerðirnar miða einkum að því að gera skipulagsgerð sveitarfélaga skilvirkari með bættu aðgengi að grunngögnum og leiðbeiningum, tryggja heildarhagsmuni við gerð skipulagsáætlana sveitarfélaga og stuðla að sjálfbærri þróun þar sem tekið er mið af mögulegum áhrifum loftslagsbreytinga á samfélög og innviði.

Skipulagsstofnun vinnur nú (lok maí 2024) að útgáfu stefnunnar á aðgengilegu formi sem ætlað er að nýtast sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem koma að skipulagsgerð.

Á vef landsskipulagsstefnu, landsskipulag.is, má nálgast nánari upplýsingar um gildandi stefnu og framfylgd hennar.

Lokaafurð aðgerðar

Landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028.

Annað tengt efni

Endurskoðuð Landsskipulagsstefna lögð fram og samþykkt
Samþykkt á Alþingi 16. maí 2024.
 
Landsskipulagsstefna fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028

Grænbók um skipulagsmál til umsagnar júlí 2023.

Drög að greinargerð um stöðu og þróun skipulagsmála, gefin út samhliða grænbók. Greinargerðin verður unnin áfram samhliða endurskoðun landsskipulagsstefnu.

Tengiliður

Innviðaráðuneytið, skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála, irn@irn.is

Skipulagsstofnun skipulag@skipulag.is