5.3.9 Aðlögunaráætlun: Hönnun fyrir aðlögun að loftslagsbreytingum

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Aðgerðin miðar að því að útbúa leiðbeiningar fyrir aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum með áherslu á hönnun sem tekur mið af náttúruvá, endurnýtingu og náttúruvænum lausnum. Þetta felur í sér kortlagningu helstu áhættuþátta. Þróun lausna byggðum á náttúrumiðuðum nálgunum, með áherslu á líffræðilega fjölbreytni og endurnýtingu. Hagnýtar aðferðir fyrir skipulag og hönnun bygginga og innviða.

Markmið: Tryggja að byggingar og innviðir séu hannaðir með tilliti til loftslagsbreytinga, með áherslu á áhættuminnkun og langtíma sjálfbærni. Stuðla að hagnýtri þekkingu með skýrum leiðbeiningum sem nýtast hagaðilum í mannvirkjagerð.

Ábyrgð: HMS, URN, Sambandið

Tími: 2025-2028

Lokaafurð: Kortlagning á helstu áhættuþáttum tengdum loftslagbreytingum, fyrir mannvirki á Íslandi. Þróun hönnunarleiðbeiningar sem styðja við lausnir fyrir aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum með áherslu á líffræðilega fjölbreytni og náttúrumiðaðar lausnir. Skýrar leiðbeiningar til hagaðila um aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is