6.10. Koma á fót átaksverkefni um vistvæn skref innan byggingariðnaðarins

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Farið verði í átaksverkefni sem hvetur og aðstoðar fyrirtæki innan mannvirkjageirans til að taka vistvæn skref. Fyrirtæki sem taka þátt setji sér markmið og skuldbindi sig til að uppfylla ákveðinn fjölda af valkvæðum kröfum (t.d. innleiðingu á umhverfisstjórnunarkerfi, flokkun úrgangs á verkstað skv. lögum, notkun vistvænna vinnuvéla, mælingar á losun á framkvæmdasvæði o.s.frv.). Samhliða verði keyrð öflug fræðsluáætlun og stuðningur veittur fyrir árangursríka innleiðingu. Við þróun verkefnisins er til dæmis hægt að fá andagift frá World Green Building Council (The Net Zero Carbon Buildings Commitment), Danmörku (Frivillig bæredygtihedsklasse) og verkefninu Ábyrg ferðaþjónusta.

Markmið: Að efla meðvitund, þekkingu, metnað og samstöðu byggingargeirans um vistvæna mannvirkjagerð og styðja við fyrirtæki innan hans til að grípa til skilvirkra aðgerða.

Ábyrgð: Óljóst.

Staðan í maí 2022: Undirbúningur hafinn.

Tími: 2022.

Staðan desember 2025

Aðgerð í endurmat.

Sem hluti af þessari aðgerð voru Græn skref fyrir byggingariðnaðinn sérhönnuð að fyrirtækjum í fimm tegundum fyrirtækjarekstrar innan byggingariðnaðarins. Stafræni vettvangurinn Laufið fékk til þess styrk árið 2022 úr Aski, og voru skrefin að mestu leyti tilbúin þegar lokaskýrslu var skilað í september 2023. Hins vegar hefur fyrirtækið enn ekki aðlagað hugbúnaðinn, og því var talið skynsamlegast að setja aðgerðina í endurskoðun. 

Nánari upplýsingar

Verkefnið fól í sér aðlögun á Grænum skrefum atvinnulífsins fyrir byggingariðnaðinn, bæði efnislega og í hugbúnaði. Verkefnið náði til fjölbreyttra fyrirtækja í byggingariðnaði, byggingarvöruframleiðanda, söluaðila, hönnuða, verktaka og eigendur mannvirkjaframkvæmda og mannvirkja. Markmiðið var að auðvelda öllum aðilum í byggingariðnaði að stíga skref í átt að umhverfisvænni mannvirkjagerð.

Grænu skrefin í byggingariðnaði áttu að vera aðgengileg í hugbúnaði Laufsins ásamt þeim lausnum sem hugbúnaðurinn býður nú þegar upp á.

  • Unnið var að aðlögun vettvangsins fyrir byggingariðnaðinn með það að markmiði að auðvelda öllum hagaðilum að stíga skref í átt að umhverfisvænni
    mannvirkjagerð. 
  • Verkefnið fékk styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði við úthlutun fyrir árið 2022. Tveir aðilar úr verkefnastjórn Byggjum grænni framtíð voru í samráðshóp verkefnisins sem tók þátt í efnisþróun, rýndu gögn og efni og veittu ráðgjöf hvað varðaði þá þætti sem sneru að Vegvísi í vistvænni
    mannvirkjagerð.
  • Lokaskil í Ask Styrkhafar –
    Askur mannvirkjarannsóknasjóður | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
 
Annað tengt efni

Tengiliður

Bjarki Pétursson hjá Laufinu, bjarki@laufid.is