2.8. Kanna hvort og hvenær eigi að hætta nýskráningum vinnuvéla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Um leið verði kannaðir möguleikar á undanþágum í sérstökum tilfellum. Hægt væri að byrja á smærri vinnuvélum, sem eru komnar lengra í orkuskiptum en þær stærri.

Markmið: Að mikilvæg varða í orkuskiptum vinnuvéla verði skoðuð og mögulega skilgreind og gerð sýnileg með góðum fyrirvara, til upplýsingar og hvatningar fyrir alla hagaðila.

Ábyrgð: Lagt er til að það verði viðeigandi stjórnvöld þegar þar að kemur.

Tími: Fyrir 2027.

Staðan ágúst 2023

Aðgerð ekki hafin.

Lokaafurð aðgerðar

Lokaafurð aðgerðar felst í niðurstöðum greiningar á því hvort og hvenær eigi að hætta nýskráningum vinnuvéla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneytuum. Um leið verði kannaðir möguleikar á undanþágum í sérstökum tilfellum.

Annað tengt efni

Tengiliður

Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS, thora.thorgeirsdottir@hms.is