Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Í uppbyggingu Mannvirkjaskrár HMS verður gert ráð fyrir því að skráð verði sérstaklega þegar leyfi hefur verið gefið til niðurrifs byggingar.

Markmið: Að fá yfirsýn yfir hvaða byggingar hafa fengið leyfi til niðurrifs og hvenær, svo hönnuðir, byggingaraðilar o.fl. fái betra tækifæri til að kanna hvar, hvenær og hvers konar byggingarefni mun falla til við niðurrif til mögulegrar notkunar í önnur verkefni.

Ábyrgð: HMS.

Tími: 2022-2023.

Staðan ágúst 2023

Aðgerð hafin.

Verið er að byggja upp mannvirkjaskrá með markvissum hætti, þannig að hægt verði að þróa lausn sem felst í því að skráð verði sérstaklega þegar leyfi hefur verið gefið til niðurrifs byggingar.

 

Lokaafurð aðgerðar

Lokaafurð aðgerðar felst í því að hægt verði af kalla fram í mannvirkjaskrá yfirlit yfir þær byggingar á Íslandi sem hafa fengið heimild til niðurrifs á hverjum tíma.

Annað tengt efni

Mannvirkjaskrá er ætlað að veita áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð, tegundir húsnæðis, notkunarsvið, framvindu á framkvæmdartíma og stöðuna á húsnæðismarkaði. Mannvirkjaskrá geymir gögn um byggingar á Íslandi, byggingarhluta og eiginleika þeirra, ásamt byggingarleyfismálum og úttektum tengt þeim. Mannvirkjaskrá nýtir meðal annars gögn úr fasteignaskrá ásamt gögnum frá sveitarfélögum um byggingaleyfismál svo sem byggingarleyfisumsóknir, útgefin byggingarleyfi og stöðu þeirra. 

Til staðar er fjöldi spennandi þróunartækifæra til að efla mannvirkjaskrá og rekjanleika mannvirkjagerðar til framtíðar, til dæmis varðandi móttöku rafrænna hönnunargagna og vistun mikilvægra upplýsinga á borð við orkunýtingu, vottanir, tjón, viðhald og fleira sem gerist á líftíma mannvirkja.

Í lok árs 2022 var mælaborð fyrir íbúðir í byggingu formlega opnað, þar sem hægt er að nálgast samantekin gögn og talningar fyrir íbúðarhúsnæði úr Mannvirkjaskrá HMS. Í mælaborðinu eru birtar upplýsingar um íbúðir í byggingu, byggingaráform og fullbúnar íbúðir, eftir tegund húsnæðis, stærðarflokkun og framvindu. Sjá nánar Mælaborð íbúða í byggingu.

Tengiliður

Elín Þórólfsdóttir, HMS, Elin.Thorolfsdottir@hms.is