5.1.6. Skilgreina mannvirkjaflokka, mannvirkjaverkefni og grunnviðmið fyrir kolefnisspor þeirra

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Í fyrstu verði viðmiðin byggð á gagnaöflun úr íslenskum og erlendum greiningum.

Markmið: Að auka þekkingu á loftslagsvænum verkefnum og lausnum. Að auðvelda markmiðasetningu um samdrátt í losun í verkefnum.

Ábyrgð: Innviðaráðuneyti og HMS.

Tími: 2023.

Staðan ágúst 2023

Aðgerð ekki hafin.

Ljóst er að aðgerðin mun ekki koma til framkvæmdar fyrr en um 2025/2026, þegar fleiri lífslferilsgreiningar liggja fyrir sem hægt er að nýta við skilgreiningu grunnviðmiða ólíkra mannvirkjaflokka.

Lokaafurð aðgerðar

Lokaafurð aðgerðar felst í útgáfu grunnviðmiða fyrir kolefnisspor mismunandi mannvirkjaflokka og -verkefni, á grundvelli samræmdrar aðferðafræði (sjá aðgerð 5.1.3).

Þegar nær dregur 2030 er miðað við að sett verði krafa um að nýbyggingar skuli vera undir skilgreindum grunnviðmiðum.

Annað tengt efni

Leiðbeiningar um lífsferilsgreiningar fyrir byggingar í Danmörku.

Leiðbeiningar um lífsferilsgreiningar fyrir byggingar í Svíþjóð.

Danmörk hefur innleitt kröfu um að nýbyggingar losi undir ákveðnum grunnviðmiðum frá janúar 2023 (limit values). Hér er lesefni í tengslum við þær breytingar.

Danskt örmyndband (með texta) um grunnviðmið fyrir kolefnisspor bygginga (limit values).

Samnorrænt samstarfsverkefni um vistvæna mannvirkjagerð: Nordic Sustainable Constructions

Tengiliður

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is