Staðan nóvember 2023
Aðgerð lokið.
Í framkvæmd tók aðgerðin aðeins til Svansins en sem dæmi önnur vottunarkerfi í byggingariðnaðinum má nefna BREEAM og LEED.
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að
draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti. Á Íslandi er Umhverfisstofnun umsjónaraðili
Svansvottunarinnar og vinnur náið með skrifstofum Svansins á öllum Norðurlöndunum.
Fjöldi umsókna fyrir Svansvottaðar byggingar hefur aukist á síðustu árum og því tækifæri að bjóða upp á námsefni tengdu vottunarkerfinu til
að styðja við og aðstoða umsækjendur í vottunarferlinu.
Þegar vörur eða þjónusta eru vottaðar samkvæmt Svansviðmiðunum er allur lífsferillinn skoðaður. Umsækjandi þarf að uppfylla bæði skyldukröfur og valkröfur og taka kröfurnar á mismunandi atriðum eins og:
- skaðlegum efnum í bygginga- og efnavöru,
- innivist,
- orkusparnaði,
- lækkun kolefnisspors,
- gæðastjórnun og
- hringrásarhagkerfinu.
Vottunarferlið er umfangsmikið og krefst þess að mismunandi aðilar vinni saman bæði á hönnunar- og framkvæmdarferli.
Svanurinn gerir kröfu um að skipaður sé ábyrgðaraðili sem heldur utan um Svansvottunarferlið og er helsti tengiliður við Svaninn á Íslandi sem sér um vottunina. Sá aðili sér um verkefnastjórn ferlisins og þarf að vera vel kunnugur kröfum Svansins.
Lokaafurð aðgerðar
Lokaafurð aðgerðarinnar felst í því að koma í fastan farveg námskeiðum fyrir umsækjendur Svansvottaðra bygginga og endurbóta. Nánar til tekið er miðað við að eitt námskeið verði haldið á hverri önn í samstarfi við Iðuna fræðslusetur en einnig er boðið upp á að halda námskeið fyrir sveitarfélögin.
Ástæða þótti til að útfæra námskeið sem fjallar um viðmið Svansins fyrir nýbyggingar (nr. 089, útgáfa 4) og var markmið þess að taka heildrænt á viðmiðum Svansins fyrir nýbyggingar þar sem bæði kröfurnar voru kynntar en einnig var farið ítarlega í það hvernig lesa ætti úr viðmiðaskjalinu og fleira.
Fyrsta námskeiðið var haldið í samstarfi við Iðuna fræðslusetur í nóvember 2022 en síðan þá hafa fjögur námskeið verið haldin í Reykjavík, eitt á Akureyri og eitt á Selfossi en öll námskeiðin hafa verið vel sótt.
Einnig hefur verið boðið uppá námskeið fyrir sveitarfélögin sem tengist einnig annarri aðgerð í vegvísinum 5.2.6 Fræðsla til sveitarfélaga um vottanir.
Upplýsingar um námskeið sem haldið er í samstarfi við Iðuna fræðslusetur má nálgast hér.
Vert að nefna að stofnað hefur verið til tengslahóps um umhverfisvottanir mannvirkja á vegum Grænni byggðar.
Annað tengt efni
Ítarefni um Svansvottaðar byggingar.
Upptökur af fyrirlestrum um umhverfisvænar framkvæmdir, á Bransadögum Iðunnar fræðsluseturs, nóvember 2022.
Upptaka af fyrirlestri um umhverfisvænni framkvæmdir.
Námskeið fyrir iðnmeistara um Svansvottun á byggingarstað, hjá Iðunni fræðslusetri.