Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í júní 2022:

Einfaldar leiðbeiningar um hvernig má í opinberum innkaupum stuðla að vistvænni mannvirkjagerð og viðhaldi (bæði í útboðum og verðfyrirspurnum). Auk þess verða tekin saman sýnidæmi um skilyrði, hæfiskröfur og valforsendur um umhverfismál í útboðum fyrir mannvirkjaframkvæmdir.

Markmið: Að auðvelda opinberum verkkaupum öll vistvæn innkaup fyrir mannvirkjaframkvæmdir.

Ábyrgð: Ríkiskaup.

Staðan í maí 2022: Aðgerð fjármögnuð af URN. Framkvæmd hafin.

Tími: 2021-2022.

Staðan desember 2025

Aðgerð lokið.

Aðgerðin var unnin af Ríkiskaupum, Grænni byggð, HMS og SI. Hún var styrkt af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og HMS.

Í janúar 2024 lágu fyrir niðurstöður könnunar sem gerð var meðal verkkaupa og verktaka um umhverfisskilyrði í útboðum.

Þann 6. mars 2024 var haldin opin vinnustofa á vegum Grænni byggðar, SI, Ríkiskaupa og HMS um umhverfisskilyrði í útboðum. Þar voru niðurstöðurnar m.a. kynntar og safnað frekara fóðri, sem nýtt var í gerð leiðbeininga og sýnidæma.

Lokaafurð aðgerðar

Leiðbeiningar um vistvæn innkaup fyrir mannvirkjagerð. 

Aðgerð6.4_Leiðbeiningar

Annað tengt efni

Umhverfisskilyrði fyrir byggingaframkvæmdir – grunnviðmið

Umhverfisskilyrði fyrir byggingarframkvæmdir – ítarviðmið

Tengiliður

Ragnar Ómarsson, Verkís og Grænni byggð, rom@verkis.is