Staðan desember 2025
Aðgerð í endurmat.
Sem hluti af þessari aðgerð voru Græn skref fyrir byggingariðnaðinn sérhönnuð að fyrirtækjum í fimm tegundum fyrirtækjarekstrar innan byggingariðnaðarins. Stafræni vettvangurinn Laufið fékk til þess styrk árið 2022 úr Aski, og voru skrefin að mestu leyti tilbúin þegar lokaskýrslu var skilað í september 2023. Hins vegar hefur fyrirtækið enn ekki aðlagað hugbúnaðinn, og því var talið skynsamlegast að setja aðgerðina í endurskoðun.
Nánari upplýsingar
Verkefnið fól í sér aðlögun á Grænum skrefum atvinnulífsins fyrir byggingariðnaðinn, bæði efnislega og í hugbúnaði. Verkefnið náði til fjölbreyttra fyrirtækja í byggingariðnaði, byggingarvöruframleiðanda, söluaðila, hönnuða, verktaka og eigendur mannvirkjaframkvæmda og mannvirkja. Markmiðið var að auðvelda öllum aðilum í byggingariðnaði að stíga skref í átt að umhverfisvænni mannvirkjagerð.
Grænu skrefin í byggingariðnaði áttu að vera aðgengileg í hugbúnaði Laufsins ásamt þeim lausnum sem hugbúnaðurinn býður nú þegar upp á.
- Unnið var að aðlögun vettvangsins fyrir byggingariðnaðinn með það að markmiði að auðvelda öllum hagaðilum að stíga skref í átt að umhverfisvænni
mannvirkjagerð. - Verkefnið fékk styrk úr Aski – mannvirkjarannsóknarsjóði við úthlutun fyrir árið 2022. Tveir aðilar úr verkefnastjórn Byggjum grænni framtíð voru í samráðshóp verkefnisins sem tók þátt í efnisþróun, rýndu gögn og efni og veittu ráðgjöf hvað varðaði þá þætti sem sneru að Vegvísi í vistvænni
mannvirkjagerð. - Lokaskil í Ask Styrkhafar –
Askur mannvirkjarannsóknasjóður | Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Annað tengt efni
Tengiliður