1.8 Leiðbeiningar um umhverfiseiginleika byggingarvara

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Leiðbeiningar um umhverfiseiginleika byggingarvara sem styðja við hönnuði, verktaka og aðra hagaðila við val á umhverfisvænum byggingarvörum. Þetta verður gert með því að setja fram skýr viðmið um hvað telst umhverfisvænt, með hliðsjón af ýmsum þáttum eins og kolefnislosun, kolefnisbindingu, hringrásarhagkerfi (endurvinnslu- og endurnýtingarmöguleikum), aðgengi að umhverfisvottunum og tilvist hættulegra efna.

Aðgerðin felur einnig í sér greiningu á algengustu byggingarvörum á íslenskum markaði í samræmi við þessi viðmið, með það að markmiði að gera upplýsingar um umhverfiseiginleika aðgengilegar og nothæfar fyrir hagaðila.

Markmið: Að auka notkun umhverfisvænna byggingarvara og þar með draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá byggingariðnaði, ásamt því að auka vitund og fræðslu um vistvænar byggingarlausnir.

Ábyrgð: HMS, Grænni byggð og UOS

Tími: 2025-2027

Lokaafurð: Aðgengilegar og skýrar leiðbeiningar sem skilgreina umhverfiseiginleika byggingarvara og styðja við upplýstar ákvarðanir í byggingargeiranum. Greining á algengustu byggingarvörum á íslenskum markaði með tilliti til umhverfiseiginleika þeirra.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is