Staðan september 2025
Aðgerð í vinnslu.
Ísland tekur virkan þátt í verkefni Nordic Sustainable Construction (NSC) 2025-2027, sem hefur það markmið að efla samstarf og miðlun þekkingar milli stjórnvalda, atvinnulífs og sérfræðinga á Norðurlöndunum. Með verkefninu er mótuð sameiginleg sýn Norðurlandanna um að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030.
Ísland leiðir hluta loftslagsvinnunnar innan NSC, sem snýr að lífsferilsgreiningum, lágkolefnislausnum og loftslagsaðlögun.
Í tengslum við aðgerð 1.9 er sérstaklega horft til Verkefnis 2 í íslenska vinnupakkanum – Byggingarvörur, sem miðar að því að styðja við nýsköpun og þróun lágkolefnislausna og annarra sjálfbærra aðferða í byggingariðnaði.
Lokaafurð: Hagnýtar og skýrar upplýsingar og verkfæri fyrir byggingariðnaðinn sem auðvelda innleiðingu náttúrulegra efna og lausna með áherslu á lágkolefnislausnir og líffræðilega fjölbreytni.
Tengiliður:
Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is