2.9. Leiðarvísir fyrir losunarlausa verkstaði (Jarðefnaeldsneytislausar framkvæmdir)

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Aðgerðin miðar að því að draga úr losun á verkstöðum með innleiðingu aðferða sem minnka notkun jarðefnaeldsneytis við framkvæmdir. Þetta felur meðal annars í sér aukna notkun annarra orkugjafa, svo sem rafmagns og lífdísils, sem og bætta skipulagningu verkstaða til að hámarka orkunýtni og lágmarka losun.

Jafnframt er mikilvægt að endurskoða skipulagsferla til að tryggja að umhverfisvænir orkugjafar, eins og rafmagn og hitaveita, séu aðgengilegir frá upphafi framkvæmda. Þetta getur stuðlað að minni notkun flutninga á jarðefnaeldsneyti til tímabundinnar raf- og varmaorku á verkstöðum.

Til að styðja við orkuskipti í framkvæmdum verður tekið saman núverandi þekking og gögn um losunarfría verkstaði og unnin leiðarvísir sem tekur mið af íslenskum aðstæðum. Með því að greina þær tæknilausnir sem þegar eru til staðar og hvaða skref eru nauðsynleg fyrir frekari innleiðingu, verður hægt að styðja byggingariðnaðinn við að draga úr losun á framkvæmdatíma og uppfylla sífellt strangari umhverfiskröfur.

Einnig er horft til kerfislægrar umbreytingar í átt að losunarfríum framkvæmdum og hvernig hægt er að nýta þá tækni og þau tæki sem eru aðgengileg til orkuskipta.

Markmið: er að draga úr losun á framkvæmdatíma bygginga.

Ábyrgð: HMS, Grænni byggð, Reykjavíkurborg, SI, Vegagerðin

Tími: 2025-2028

Staðan júlí 2025

Aðgerð lokið

Efnið í bæklingunum um Græna verkstaði er unnið upp úr niðurstöðum verkefnisins Losunarlausir verkstaðir og er hluti af aðgerð 2.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð. Markmið aðgerðarinnar er að búa til og gefa út íslenskt, staðfært efni um hvernig hægt er að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda á byggingarstað, með það að leiðarljósi að gera verkstaði að fullu losunarlausa til framtíðar.

Niðurstaðan er leiðarvísir í fimm hlutum sem fylgir framkvæmdarferlinu frá undirbúningi og hönnun til framkvæmda, mælinga og mats á árangri.

Leiðarvísirinn er ætlaður hönnuðum, verkkaupum, verktökum og öðrum hagaðilum og er bæði fræðandi og hagnýtur. Sérstök áhersla er lögð á að skilgreina vörður í átt að losunarlausum verkstað og að veita verkfæri sem styðja við ákvarðanatöku, græn innkaup, minni orkunotkun og betri úrgangsstjórnun – sérstaklega í tengslum við fasa A4 og A5 í lífsferilsgreiningum.

Efnið nýtist einnig í samhengi við aðrar aðgerðir í Vegvísinum, t.d. græn innkaup, lífsferilsgreiningar og úrgangsforvarnir. Bæklingarnir byggja á innlendri og norrænni reynslu, m.a. úr samstarfsverkefninu Nordic Sustainable Construction.

Lokaafurð

Leiðarvísir fyrir losunarlausa verkstaði, gefinn út í fimm hlutum. Hver hluti er aðgengilegur í stafrænu formi:

1. Grænir verkstaðir 

2. Skipulag og hönnun

3. Útboð

4. Framkvæmd

5. Mælingar og mat

Annað tengt efni

Grænni byggð, Grænir verkstaðir – Bæklingar

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is