Aðgerðin miðar að því að samræma kröfur og aðferðir fyrir lífsferilsgreiningar (LCA) á Íslandi við alþjóðlegar og norrænar reglur og staðla, með áherslu á Evrópureglugerð (EPBD). Þetta felur í sér samanburð á núverandi reglum, kröfum og stöðlum, ásamt þróun ítarlegra og notendavænna leiðbeininga um framkvæmd LCA.
Verkefnið mun einnig innihalda sýnidæmi af raunverulegum greiningum til að auðvelda markaðnum innleiðingu og skilning á aðferðafræðinni. Aðgerðin felur í sér fræðslu og kynningu á leiðbeiningunum til að styðja við byggingaraðila og hönnuði í notkun LCA, ásamt nýtingu umhverfisyfirlýsinga (EPD). Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja að íslenskar kröfur séu í takt við þróun á Norðurlöndum og í Evrópu.
Markmið: Að auka skilning og notkun á LCA-greiningum meðal byggingaraðila og hönnuða, stuðla að samanburðarhæfi greininga og tryggja aðferðir sem samræmast alþjóðlegum og norrænum stöðlum.
Ábyrgð: HMS
Tími: 2025-2027