5.1.14 Líftími byggingarvara

Upplýsingar um aðgerð skv. II. hluta Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð, útg. í maí 2025:

Skilgreina líftíma helstu byggingarvara með tilliti til íslenskra aðstæðna, þar á meðal veðurfar, rakastig, hitastig og önnur staðbundin áhrif sem geta haft áhrif á endingartíma. Aðgerðin mun byggja á reynslu og rannsóknum í náinni samvinnu við hagaðila og norræn samstarfsverkefni. Niðurstöður verða nýttar til að tryggja betri hönnun, framkvæmdir og lífsferilsgreiningar fyrir mannvirki.

Markmið: Að veita áreiðanlegar og staðbundnar upplýsingar um líftíma byggingarvara til að bæta áætlanagerð, draga úr úrgangi og auka sjálfbærni í mannvirkjagerð. Einnig að tryggja að fyrstu viðmið verði unnin í breiðu samráði við hagaðila, sérstaklega þá sem sjá um rekstur og viðhald mannvirkja.

Ábyrgð: HMS og Grænni byggð

Tími: 2025-2027

Staðan september 2025

Aðgerð í vinnslu.

Verkefnið líftími byggingarefna á Íslandi hlaut Ask styrk og markmið þess er að útvega upplýsingar og uppfæra fyrirliggjandi gögn um líftíma og endingu byggingarefna á Íslandi og þar með leggja grunn að áætlaðri viðhaldsþörf, verðmætamati, ástandsmati, útreikningi á líftímakostnaði sem og á kolefnisspori bygginga á líftímanum.

Þátttakendur í verkefninu eru:

  • Alexandra Kjeld, Efla
  • Björn Marteinsson, prófessor emiritus HÍ
  • Sverrir Jóhannesson, FSRE
  • Páll V. Bjarnason, Reginn
  • Valdimar G. Guðmundsson, þjónustudeild Landsspítalans
  • Hermann Guðmundsson, Ístak
  • Atli Geir Gunnarsson, BYGG

 

Hægt er að nálgast áfangaskýrslu verkefnisins hér.

 

Lokaafurð: Líftími helstu byggingarvara við íslenskar aðstæður.

Tengiliður:

Elín Þórólfsdóttir, HMS, elin.thorolfsdottir@hms.is