Stöng hlaut Grænu skófluna fyrir endurbætur 2025!

Á Degi Grænni byggðar var Græna skóflan fyrir endurbætur afhent í fyrsta skipti! Fyrsti handhafi þessarar nýju viðurkenningar er Stöng í Þjórsárdal.

Í mati dómnefndar segir meðal annars: Menningarleg og söguleg þýðing þessa mannvirkis sameinast framtíðarsýn, þegar horft er til umhverfislegra þátta sjálfbærnis og má þá nefna atriði eins og að endurnýta eins mörg byggingarefni og hluti og hægt er en núverandi burðavirki er frá 1957, hanna bygginguna þannig að auðvelt sé að taka hana niður, velja heilnæm og endurvinnanleg efni og einnig að hugsa um að draga úr orkufari í allri notkun byggingarinnar.

Sjá frekari upplýsingar um verkefnið á vef FSRE.