
Í lok árs 2025 hafa 52 af 90 aðgerðum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 verið kláraðar. Á árinu bættust við 16 nýjar aðgerðir ofan á þær 74 sem upphaflega voru á áætlun.
Á árinu tókst að ljúka 12 aðgerðum eða setja þær í endurmat. Af þeim 23 aðgerðum sem enn eru óloknar hefur verið hafist handa við 13.
Hér eru nokkrar aðgerðir sem kláruðust á árinu:
Aðgerð 3.6.: Gera leiðbeininga um hönnun hita-, kæli- og loftræstikerfa
Útbúnar voru leiðbeiningar í nánu samstarfi við helstu hagaðila markaðarins varðandi ýmis atriði við hönnun hita-, kæli- og loftræsikerfa.
- Góð orkunýtni og innivist nást best þegar hönnun, stýring og gangsetning tæknikerfa eru unnin sem ein heild
- Skýr kerfismynd, hnitmiðuð kerfislýsing, samráð hagaðila og tímanleg hönnunarrýni draga úr breytingum á framkvæmdatíma og minnka líkur á rekstrarvanda eftir afhendingu
- Mikilvægt er að skilgreina mælipunkta, tryggja aðgengi, jafnvægisstilla kerfin og skýra ábyrgð á stillingum í hönnunargögnum frá upphafi
Lokaafurð: Aðgerð3.6_leiðbeiningar
Aðgerð 3.9.: Rannsaka möguleikana á að setja kröfu um uppsetningu stýrðra loftræstikerfa með varmaendurvinnslu í ákveðnum flokkum nýbygginga
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skoðaði aðgerðina með aðkomu þriggja sérfræðinga og niðurstöður sýna að heilsufarslegur ábati loftræstikerfis með varmaendurvinnslu er skýr. Hins vegar er fjárhagslegur endurgreiðslutími langur, þar sem orkuverð er lágt, en einnig benda rannsóknir til þess að umhverfislegur endurgreiðslutími hvað varðar losun gæti einnig verið langur, ef innbyggt kolefni kerfisins er tekið til greina.
Oft getur verið nauðsynlegt að vera með vélrænt loftræstikerfi til að ná kröfum byggingarreglugerðar um magn koltvísýrings í innilofti, og því má áætla að notkun loftræstikerfa með varmaendurvinnslu verði vænt afleiðing af mögulegri nýrri framtíðarkröfu um orkunýtni nýbygginga sem tekur mið af orkutapi frá loftskiptum, auk kröfu um magn koltvísýrings innandyra.
Aðgerð 5.3.1.: Samnýta fyrirliggjandi innviði til að draga úr þörf á mannvirkjagerð í Reykjavík
Í gegnum hverfisskipulag, þéttingu byggðar, endurnýjun hverfiskjarna og fjárfestingu hefur verið lögð áhersla á að hverfi Reykjavíkurborgar verði gönguvænni og að tryggt verði aðgengi að grænum svæðum, útivist og þjónustu í 15 mínútna göngu- eða hjólafæri. Vel gengur að framfylgja Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar til 2040 sem tengjast markmiðum um 15 mínútna hverfi. Hér fyrir neðan má sjá stöðu mælikvarða AR2040 sem landupplýsingadeild Reykjavíkur tók saman í lok árs 2024.
- Íbúafjöldi – +20.181 (2015-2024)
- Aukning á íbúaþéttleika – 18% (2014-2024)
- Fjöldi íbúa innan vaxtarsvæðis – +17,5% (2015-2024)
- Fjöldi íbúa 400 m frá stoppistöð – +19,8%
- Göngugötur – +643,4% (2015-2024)
- Fjöldi íbúa 400 m frá matvörubúð – +23,9% (2015-2024)
- Hjólastígar +138,8% (2015-2024)
- Fjöldi íbúa innan Hringbrautar – +17,2%
- Áætlaðar uppbyggingar á þegar byggðum eða röskuðum svæðum – 80% (2015-2033)
- Hlutfall íbúa innan við 300 m frá útivistarsvæði (>2000 m2) +96%
Heimild: Mælikvarðar AR2040. Sjá nánar HÉR.
Aðgerð 6.4.: Gefa út leiðbeiningar um vistvæn innkaup fyrir mannvirkjagerð og sýnidæmi um umhverfisvænar hæfiskröfur og valforsendur fyrir mannvirkjaframkvæmdir
Aðgerðin var unnin af Ríkiskaupum, Grænni byggð, HMS og SI. Hún var styrkt af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og HMS.
Í janúar 2024 lágu fyrir niðurstöður könnunar sem gerð var meðal verkkaupa og verktaka um umhverfisskilyrði í útboðum. Þann 6. mars 2024 var haldin opin vinnustofa á vegum Grænni byggðar, SI, Ríkiskaupa og HMS um umhverfisskilyrði í útboðum. Þar voru niðurstöðurnar m.a. kynntar og safnað frekara fóðri, sem nýtt var í gerð leiðbeininga og sýnidæma.
Lokaafurð: Aðgerð6.4_Leiðbeiningar
Framtíðarsýn og næstu skref
Verkefnastjórn mun halda áfram að funda mánaðarlega til að tryggja að aðgerðir Vegvísisins séu framkvæmdar samkvæmt áætlun og að gripið sé tímanlega inn í ef áhættuþættir eða hindranir koma upp. Áherslan verður á nýsköpun, fræðslu og stefnumótun með það að markmiði að skapa umhverfisvænan byggingariðnað sem stefnir að kolefnishlutleysi og sjálfbærni til framtíðar.
Skoða allar aðgerðir: Byggjum grænni framtíð