Árleg losun íslenskra bygginga hefur verið metin í fyrsta sinn. Sigríður Ósk Bjarnadóttir og Björn Marteinsson birtu niðurstöðurnar í skýrslunni Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030. I. hluti: Mat á kolefnislosun frá íslenskum byggingariðnaði, sem gefin var út í febrúar á vegum samstarfsverkefnisins Byggjum grænni framtíð.
Sigríður og Björn munu kynna skýrsluna og svara spurningum fundargesta, á opnum kynningarfundi sem fram fer á Teams, 9. mars 2022, kl. 12-13.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
– Árleg losun íslenskra bygginga er um 360 þúsund tonn CO2íg.
– Byggingarefni, einkum steypa, er áhrifaríkasti þátturinn í kolefnisspori íslenskra bygginga.
– 30% af kolefnissporinu stafar frá orkunotkun á rekstrartíma bygginganna.
Í grundvelli þessarar vinnu geta mannvirkjageirinn og stjórnvöld sett sameiginleg markmið um minni losun og skilgreint aðgerðaáætlun til að ná þeim markmiðum.
Verið öll velkomin!
Teams-hlekkur á opinn kynningarfund um kolefnislosun íslenskra bygginga
Upptaka frá kynningarfundi um kolefnislosun íslenskra bygginga