90 aðgerðir sem stuðla að vistvænni mannvirkjagerð

Í aðgerðaáætluninni eru skilgreindar 90 aðgerðir í sex flokkum, sem miða að því að styðja við sjálfbærni í mannvirkjagerð. Sjá á myndinni hér að neðan. 

Hægt er að smella á hverja aðgerð til að fá upplýsingar um stöðu viðkomandi aðgerðar, tengiliði o.fl.

Staða við árslok 2024, af 74 aðgerðum, þá var 40 aðgerðum lokið og 5 aðgerðir í endurmat.

Staðan í apríl 2025, 90 aðgerðir (eftir að 16 nýjum aðgerðum var bætt við):

  • 40 aðgerðum lokið (dökk brúnar) 5 aðgerðir í endurmat (brúnar)
  • 22 aðgerðir í vinnslu (ljós brúnar)
  • 23 aðgerðir ekki hafnar (gráar)


Neðar á síðunni má sjá yfirlit yfir þá hagaðila sem  koma að framkvæmd aðgerðanna með einum eða öðrum hætti. 

Þess ber að geta að aðgerðirnar 90 duga ekki einar og sér til að ná árangri í vistvænni mannvirkjagerð. Nauðsynlegt er að öll fyrirtæki og stofnanir innan virðiskeðju mannvirkjageirans greini þau fjölmörgu tækifæri sem þau hafa í þessu sambandi. Ef við stígum öll skrefið á sama tíma verður þróunin mun hraðari en ella og ávinningur fyrir umhverfið, efnahaginn og samfélagið mun ekki leyna sér.


Meðal þátttakenda í aðgerðunum 74 eru:

 

 

Á eftirfarandi mynd sést:

– Losun íslenskra bygginga skipt eftir byggingarefnum, framkvæmdasvæðum, notkunartíma mannvirkja og við lok líftíma.

– Markmið fyrir 2030.

– Hvernig aðgerðirnar 74 skiptast eftir sex flokkum. Myndin endurspeglar jafnframt að aðgerðir einstakra hagaðila skipta miklu máli svo markmiðum fyrir 2030 verði náð.