3.15. Fræðsla til hagsmunaaðila um uppfærslu á tilskipun Evrópusambandsins um orkunýtni bygginga (EPBD).
Aðgerðin miðar að því að auka þekkingu íslenskra hagsmunaaðila á uppfærðri tilskipun Evrópusambandsins um orkunýtni byggingar (EPBD) sem tók gildi 2024. Lögð verður áhersla á tvo nýja staðla: Lágmarks staðla fyrir orkunýtni (Minimum Energy Performance Standards, MEPS) og staðal um líkur á hnattrænni hlýnun yfir lífsferil (Life Cycle Global Warming Potential (kolefnislosun yfir líftíma). Þessar upplýsingar verða kynntar á kynningarviðburði og í stuttu skjali með samantekt um uppfærsluna á íslensku. Þessi uppfærsla á EPBD er tengds BGF aðgerð 3.2 sem gengur út á að samræma aðferðafræði við gerð orkuútreikninga mannvirkja og gefa út viðmið fyrir orkuflokka bygginga.
Markmið: Að stuðla að auknum skilningi á markmiðum og kröfum EPBD og taxonomy meðal íslenskra hagsmunaaðila.
Ásamt því að veita upplýsingar og útskýra hvernig þessar reglur styðja við sjálfbærni og orkunýtingu í byggingum.
Ábyrgð: HMS og Grænni byggð
Tími: 2025-2026