Losunarlausir verkstaðir

Á vef Byggjum grænni framtíð og Grænni byggð eru nú aðgengilegar nýjar leiðbeiningar sem styðja við innleiðingu losunarlausra verkstaða og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á verkstað. Leiðbeiningarnar eru afrakstur vinnu við aðgerð 2.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð og byggðar á reynslu úr verkefninu Losunarlausir verkstaðir sem Ísland tók þátt í á vettvangi Nordic Sustainable Construction.

Leiðarvísirinn er settur fram í fimm bæklingum sem fylgja eftir framkvæmdarferlinu frá upphafi til enda:

1. Grænir verkstaðir 

2. Skipulag og hönnun

3. Útboð

4. Framkvæmd

5. Mælingar og mat

Markmiðið er að veita hagaðilum hagnýt verkfæri til að skipuleggja og framkvæma jarðefnaeldsneytislausar framkvæmdir og stuðla að sjálfbærari starfsháttum á verkstað.

Nánar um leiðbeiningarnar og aðgerð 2.9:
byggjumgraenniframtid.is/2-9-leidarvisir-fyrir-losunarlausa-verkstadi-jardefnaeldsneytislausar-framkvaemdir