Search
Close this search box.

Opið fyrir styrkumsóknir í Ask til 31.10.2023

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir í Ask – mannvirkjarannsóknarsjóð.

Umsóknarfrestur rennur út til 31. október 2023.

Askur veitir styrki til mannvirkja­rannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskor­unum á sviði mannvirkjagerðar. 

Áhersluflokkar úthlutunarinnar eru eftirfarandi:

Byggingargallar, raki, mygla

  • Greiningar á umfangi, orsökum og afleiðingum byggingargalla á Íslandi.
  • Verkefni sem stuðla sérstaklega að aukinni þekkingu á raka- og mygluskemmdum í íslenskum mannvirkjum, samanburður og þróun aðferða við mælingar og mat á umfangi slíkra skemmda. Jafnframt hvernig unnt sé að fyrirbyggja þær og bregðast við þeim með árangursríkum hætti.

, Byggingarefni

  • Rannsóknir og þróun á byggingarefnum, á endingu þeirra og eiginleikum ásamt efnisvali og notkun í samræmi við lög um byggingarvörur.
  • Verkefni sem stuðla að minna kolefnisspori byggingarefna og draga úr notkun óumhverfisvænna byggingarefna t.d. með hönnun og eflingu hringrásarhagkerfisins.

Orkunýting og losun

  • Verkefni sem fjalla um orkunýtingu mannvirkja og/eða losun gróðurhúsalofttegunda vegna mannvirkjagerðar

Tækninýjungar

  • Þróun tæknilegra og stafrænna lausna sem hafa einkum það markmið að draga úr óæskilegum umhverfisáhrifum mannvirkja og auka verðmætasköpun, hagræðingu, framleiðni og/eða samræmingu meðal hagaðila í byggingariðnaði.

Gæði

  • Rannsóknir á gæðum, endingu, hagkvæmni og hönnun íbúðahúsnæðis.
  • Greiningar á hvers konar form íbúðarhúsnæðis þurfi að byggja, meðal annars með tilliti til þróunar á félagslegum, menningarlegum, tæknilegum og sjálfbærum þáttum.

Nánari upplýsingar má nálgast r