Search
Close this search box.

Upptaka af streymi: Orkuskipti á framkvæmda-stað, 3. júní 2021

Þann 3. júní sl. buðu HMS, Grænni byggð, Landsvirkjun og Græna orkan til spennandi málstofu þar sem rætt var um orkuskipti á framkvæmdastað.

Aðalfyrirlesari var Pablo Gonzales frá Skanska, sem sagði frá áhugaverðri reynslu hins alþjóðlega byggingafyrirtækis af kolefnislausum framkvæmdastöðum.

Einnig tóku til máls:
– Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, Grænni byggð: Af hverju orkuskipti á framkvæmdastað?

– Björn Halldórsson og Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, Landsvirkjun: Kolefnishlutlaus 2025: Lágmörkum kolefnisspor framkvæmda.

– Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks: Eru ekki allir með?

– Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS/Byggjum grænni framtíð: Byggjum grænni framtíð: Skref sem stuðla að orkuskiptum.

– Anna Margrét Kornelíusdóttir, Græna orkan: Orkuskipti vinnuvéla – Vinnandi vegur.

– Ragnar K. Ásmundsson, Orkusjóður: Stuðningur Orkusjóðs við kaup á vinnuvélum sem nota vistvæna orku.

Fundarstjóri var Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, verkefnisstjóri orkuskipta hjá Orkustofnun

Hér er hægt að nálgast upptöku af viðburðinum.

Fundinum var streymt á netinu 3. júní 2021, kl. 9:00-10:30.