Search
Close this search box.

Rafræn kynning hjá Verkfræðingafélagi Íslands kl. 12, 24. mars 2021

Á hádegisfundi miðvikudaginn 24. mars kl. 12-13 verður kynning á verkefninu Byggjum grænni framtíð.

Fjallað verður um viðfangsefni og stöðu verkefnisins en einnig öflun upplýsinga um kolefnislosun mannvirkjagerðar á Íslandi og úrvinnslu þeirra.

Fyrirlesarar:
– Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, sérfræðingur hjá HMS og verkefnastjóri verkefnisins Byggjum grænni framtíð.
– Sigríður Ósk Bjarnadóttir, doktor í byggingarverkfræði, VSÓ ráðgjöf, hópstjóri mælingahóps hjá Byggjum grænni framtíð.

Að morgni fundardags verður hlekkur á streymi settur inn í á facebooksíðu VFÍ.

Í boði verður að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).