Tíu íslensk sjálfbær verkefni í mannvirkjagerð tilnefnd til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs þetta árið verða veitt einstaklingi, fyrirtæki, samtökum eða stofnun sem hefur í gegnum verkefni sín stuðlað að sjálfbærari byggingargeira á Norðurlöndunum. Alls eru 70 verkefni tilnefnd, þar af tíu íslensk:

  • Lúdika arkitektar 
  • Jukka Heinonen & team
  • Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG)
  • Bambahús 
  • Akraneskaupstaður
  • ÚRBANISTAN
  • Anna María Bogadóttir
  • Arnhildur Pálmadóttir
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, Byggjum grænni framtíð, og Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, Askur mannvirkjarannsóknarsjóður
  • Rockpore ehf. & Gerosion ehf.

Verðlaunin verða veitt 28. júní n.k. Nánari upplýsingar má finna á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.