Search
Close this search box.

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð í Samráðsgátt til og með 31. ágúst 2022

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð var birtur á Samráðsgátt Stjórnvalda í byrjun júlí.

Opið er fyrir umsagnir til og með 31. ágúst 2022. Allir áhugasamir aðilar eru hvattir til að senda inn umsögn.

Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 var unninn á vegum verkefnisins Byggjum grænni framtíð, sem er samstarfsvettvangur stjórnvalda og byggingariðnaðarins um vistvæna mannvirkjagerð. Samstarfið á rót sína að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Um 200 hagaðilar úr allri virðiskeðju mannvirkjageirans komu að vinnunni.

Í Vegvísinum er losun íslenskra bygginga tekin saman auk þess sem markmið eru sett fram um að draga úr þeirri losun til 2030 og aðgerðir skilgreindar til að ná þeim markmiðum.