Search
Close this search box.

Vinnustofur í byrjun mars

Í byrjun mars verða fimm vinnustofur haldnar á vegum vinnuhópa 1 til 5. Miðað er við að þær verði haldnar á Teams en ef fjöldatakmarkanir vegna Covid-19 breytast þá gæti verið að einhverjar vinnustofur verði haldnar í fundarsal í Reykjavík. Nánar um það þegar nær dregur. 

Allir hagaðilar byggingar- og mannvirkjageirans eru hvattir til að mæta og taka þátt. 

Fylgstu með þróun mála og skráðu þig á póstlistann. Þá færðu senda tölvupósta með tilkynningum um vinnustofur og helstu vörður verkefnisins.