Vinnustofa 6. mars 2024 um umhverfisskilyrði í útboðum og verksamningum.

Ríkiskaup, Samtök iðnaðarins, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Grænni byggð boða til opins samtals um umhverfisskilyrði í útboðum og verksamningum hér á landi. Fundurinn fer fram miðvikudaginn 6. mars kl. 14.00 til 15.30 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35, í fundarsalnum Hyl.

Skráning: https://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/a-dofinni/skraning/nanar/2042

Dagskrá

·       Þóra Margrét Þorgeirsdóttir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fer yfir forsendur og markmið aðgerðar 6.4 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð.

·       Sveinbjörn Ingi Grímsson frá Ríkiskaupum fjallar um svigrúm í opinberum innkaupum til að beita umhverfisskilyrðum innan lagalegra heimilda.

·       Áróra Árnadóttir framkvæmdastjóri Grænni byggðar fjallar um niðurstöður úr svarkönnun um notkun á umhverfisskilyrðum í útboðum og verksamningum fyrir þjónustu- og vörukaup í mannvirkjageiranum á Íslandi.

·       Ragnar Ómarsson verkefnisstjóri Verkís hf. fjallar um efni umhverfisskilyrða í norrænum fyrirmyndum og íslenskum hugmyndum.

·       Vinnustofa með opnum umræðum á vinnuborðum um forgangsröðun og áherslur í samræmdum umhverfisskilyrðum fyrir útboð og valforsendur fyrir tilboð.

Fundarstjóri er Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.