Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun standa að morgunfundi á Nauthóli, 2. maí kl. 11-12, þar sem kynnt verða straumhvörf í byggingariðnaði með fyrirhuguðum breytingum á kafla um steypu í byggingarreglugerð.
Kynntar verða tillögur að breytingum á steypukafla byggingarreglugerðar, sem sérstakur faghópur hefur unnið í samstarfi við HMS og fjölda hagaðila innan byggingariðnaðarins.
Helstu breytingar felast í sveigjanlegri og markmiðsbundnum ákvæðum sem munu opna fyrir grænar lausnir og minni losun gróðurhúsalofttegunda, en með óbreyttri áherslu á öryggi og gæði. Þannig skapa breytingarnar m.a. hvata til að nota fjölbreyttari samsetningar í steypuíblöndun, nýta mismunandi blöndur fyrir ólíkar aðstæður og endurvinna steinefni. Einnig koma breytingarnar til móts við hækkandi heimsmarkaðsverð á sementi og stuðla því að lægra byggingarverði.
Dagskrá:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra – Ávarp
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri nýsköpunar hjá HMS – Mikilvæg skref í átt að vistvænni mannvirkjagerð
- Guðbjartur Jón Einarsson, deildarstjóri viðhalds- og aðstöðuþjónustu hjá Framkvæmdasýslu Ríkiseignum – Tillögur faghóps um breytingar á steypukaflanum
Pallborð:
- Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt hjá s. ap arkitektum
- Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir, dósent við umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins
Fundarstjóri er Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur hjá HMS.
Öll hjartanlega velkomin – skráning fer fram hér.
Strætisvagnar 5 og 8 stoppa skammt frá Nauthóli en greiðar göngu- og hjólaleiðir eru einnig að staðnum.