Search
Close this search box.

Upptaka, dagskrá, skráning og streymi: Nordica, 9. júní, kl. 14:00 – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Upptöku af fundinum má nálgast hér: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 on Vimeo

Útgáfuviðburður á Nordica, 9. júní 2022, kl. 14: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Byggjum grænni framtíð boðar til fundar í tilefni af útgáfu á Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030, sem unninn var á vegum samstarfsvettvangsins.

Viðfangsefnið var að meta losun íslenskra bygginga, setja markmið um að draga úr þeirri losun fyrir 2030 og skilgreina aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Hátt í 200 einstaklingar innan allrar virðiskeðju mannvirkjageirans komu að þessari vinnu og verða niðurstöður hennar birtar í vegvísinum.

Á fundinum verða helstu efnistök vegvísisins kynnt í fyrsta sinn og þau rædd meðal ólíkra hagaðila.


DAGSKRÁ

Kl. 14:00-15:15

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra – Ávarp

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra – Ávarp

Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar, og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri nýsköpunar hjá HMS – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Losun, markmið og aðgerðir

Umræður í pallborðum:

Pallborð I:
Umræðustjóri: Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni
Hermann Jónasson, forstjóri HMS
Marta Rós Karlsdóttir, sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar hjá Orkustofnun
Ólafur Árnason, forstöðumaður nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar

Pallborð II:
Umræðustjóri: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
Bjarma Magnúsdóttir, umhverfisstjóri ÍAV
Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélags hjá Eflu
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Regin fasteignafélagi
Þröstur Söring, framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum

Fundarstjóri: Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Kl. 15:15: Spjall og veitingar að fundi loknum.

Hægt verður að fylgjast með dagskrá fundarins í streymi.

Viðburðurinn er öllum opinn.

Þau sem ætla að koma á viðburðinn á Hilton Reykjavik Nordica hótel eru vinsamlegast beðin um að skrá sig hér.

Við hvetjum þau sem ætla að mæta á Hilton Reykjavík Nordica til að koma gangandi, hjólandi, í strætó eða með öðrum vistvænum fararskjótum. Strætóar nr. 2, 4, 5, 15 og 17 stoppa rétt hjá.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Ljósmynd:
© Helgi Vignir Bragason
instagram.com/helgi.vignir
helgivignir.is