Upptaka, dagskrá, skráning og streymi: Nordica, 9. júní, kl. 14:00 – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Upptöku af fundinum má nálgast hér: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030 on Vimeo

Útgáfuviðburður á Nordica, 9. júní 2022, kl. 14: Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030

Byggjum grænni framtíð boðar til fundar í tilefni af útgáfu á Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030, sem unninn var á vegum samstarfsvettvangsins.

Viðfangsefnið var að meta losun íslenskra bygginga, setja markmið um að draga úr þeirri losun fyrir 2030 og skilgreina aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Hátt í 200 einstaklingar innan allrar virðiskeðju mannvirkjageirans komu að þessari vinnu og verða niðurstöður hennar birtar í vegvísinum.

Á fundinum verða helstu efnistök vegvísisins kynnt í fyrsta sinn og þau rædd meðal ólíkra hagaðila.


DAGSKRÁ

Kl. 14:00-15:15

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra – Ávarp

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra – Ávarp

Áróra Árnadóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar, og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri nýsköpunar hjá HMS – Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð 2030: Losun, markmið og aðgerðir

Umræður í pallborðum:

Pallborð I:
Umræðustjóri: Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
• Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni
• Hermann Jónasson, forstjóri HMS
• Marta Rós Karlsdóttir, sviðsstjóri sjálfbærrar auðlindanýtingar hjá Orkustofnun
• Ólafur Árnason, forstöðumaður nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun
• Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar

Pallborð II:
Umræðustjóri: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun
• Bjarma Magnúsdóttir, umhverfisstjóri ÍAV
• Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri samfélags hjá Eflu
• Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Regin fasteignafélagi
• Þröstur Söring, framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum

Fundarstjóri: Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Kl. 15:15: Spjall og veitingar að fundi loknum.

—

Hægt verður að fylgjast með dagskrá fundarins í streymi.

Viðburðurinn er öllum opinn.

Þau sem ætla að koma á viðburðinn á Hilton Reykjavik Nordica hótel eru vinsamlegast beðin um að skrá sig hér.

Við hvetjum þau sem ætla að mæta á Hilton Reykjavík Nordica til að koma gangandi, hjólandi, í strætó eða með öðrum vistvænum fararskjótum. Strætóar nr. 2, 4, 5, 15 og 17 stoppa rétt hjá.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Ljósmynd:
© Helgi Vignir Bragason
instagram.com/helgi.vignir
helgivignir.is