Opnuð hefur verið vefsíða um byggingu búsetukjarnans að Háteigsvegi 59. Vefsíðan er hluti af heimasíðu Byggjum grænni framtíð. Hægt er að nálgast vefsíðuna með því að smella hér.
Við upphaf framkvæmda óskuðu verkkaupi og arkitekt eftir samstarfi við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Samstarfið fólst í skráningu á byggingarferlinu og uppsetningu vefsíðu þar sem gerð var grein fyrir veikleikum og styrk þess að feta nýjar slóðir í mannvirkjagerð.
Mannvirkið að Háteigsvegi 59 er, sé horft til íslenskrar mannvirkjagerðar, einstakt. Kolefnissporið sem fylgdi framkvæmdinni var mun lægra en hjá sambærilegum mannvirkjum, og fjölmörg byggingarefni voru endurunnin eða endurnýtt.