Á Degi Grænni byggðar þann 8. október 2025 var Græna skóflan afhent. Háteigsvegur 59 hlaut verðlaunin.
Í mati dómnefndar segir meðal annars: Verkefnið sýndi fram á að jafnvel innan núverandi reglu- og lagaumhverfis er auðveldlega hægt að draga úr kolefnisspori og endurnýta ýmis byggingarefni samhliða alhliða hönnunargrunnreglum á farsælan hátt. Sé Háteigsvegur borin saman við sambærilega byggingu, er kolefnisspor verkefnisins um 50 prósent lægra. Háteigsvegur, leggur áherslu á aðgengi fyrir alla, hagkvæmni, notkun hágæða og heilnæmra efna, auk þess að skapa heimilislegt umhverfi.
Sjá má frekari upplýsingar um verkefnið á vef Byggjum grænni framtíð.