Kallað eftir íslenskum lágkolefnis- og náttúrutengdum vörum og lausnum í norræna handbók

  • Opið er fyrir tillögur um lágkolefnis- og náttúrutengdar byggingarvörur og lausnir í nýja norræna handbók.
  • Verkefnið er hluti af Nordic Sustainable Construction og styður við aðgerð 1.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030.
  • Handbókin mun draga fram norrænar fyrirmyndarlausnir og styðja við aukna þekkingu og innleiðingu sjálfbærra byggingarvara.

Íslensk fyrirtæki, framleiðendur og aðrir aðilar í mannvirkjageiranum eru hvattir til að leggja til lágkolefnis- og náttúrutengdar byggingarvörur og lausnir sem gætu átt erindi í nýja norræna handbók.

Handbókin er hluti af norræna samstarfsverkefninu Nordic Sustainable Construction (NSC) og tengist framkvæmd aðgerðar 1.9 Nýsköpun í náttúrulegum lausnum og efnum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030. Markmið verkefnisins er að greina, skrá og miðla upplýsingum um nýstárlegar lausnir sem geta stutt við umbreytingu byggingariðnaðarins í átt að aukinni sjálfbærni.

Óskað er eftir tillögum að vörum og lausnum innan þriggja meginflokka:

  • Burðarvirki og undirstöður
  • Byggingarhjúpur og þök
  • Innri kerfi og innanhússlausnir

Við val á lausnum verður meðal annars horft til umhverfisáhrifa, nýsköpunargildis, markaðsþroska og möguleika á aukinni notkun í norrænum byggingariðnaði. Handbókin mun jafnframt varpa ljósi á tækifæri og áskoranir sem tengjast innleiðingu sjálfbærari byggingarvara og lausna.

Þessi vinna styður beint við markmið aðgerðar 1.9 um að efla nýsköpun í náttúrulegum efnum og lausnum, auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr hráefnanotkun og styðja við þróun lágkolefnislausna fyrir íslenskar aðstæður.

Opið er fyrir tillögur út ágúst 2026 og eru íslensk fyrirtæki og aðrir hagaðilar hvattir til að koma vörum og lausnum sínum á framfæri í norrænu samstarfi.

Hér má senda inn tillögur:

Handbókin verður mikilvægur þekkingargrunnur fyrir byggingariðnaðinn og mun stuðla að auknum sýnileika sjálfbærra lausna sem styðja við loftslagsmarkmið Norðurlanda og þróun sjálfbærs byggðs umhverfis.