Nordic Climate Forum for Construction verður streymt frá Norræna húsinu 30. september 2026.
Síðan 2018 hefur viðburðurinn verið haldinn af Nordic Sustainable Construction (NSC) í samstarfi við norræn mannvirkjayfirvöld og hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir samtal um sjálfbæra þróun mannvirkjageirans á Norðurlöndum.
Í ár sér HMS um skipulagningu, og sérstök áhersla verður lögð á tvö málefni sem eru í brennidepli bæði á Norðurlöndum og innan Evrópusambandsins: stafræna þróun lífsferilsgreininga (LCA) og aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum.

Styður við framkvæmd Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð
Viðfangsefni ráðstefnunnar tengjast beint nokkrum lykilaðgerðum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030.
Stafræn þróun LCA
Eitt af meginþemunum er þróun og samnýting stafrænna lausna sem styðja við sjálfbærari mannvirkjagerð. Þar verður meðal annars fjallað um byggingarvörureglugerðina (CPR), stafrænt vöruvegabréf (DPP) og stafræna mannvirkjaskrá, auk þess hvernig nýta má stafrænar lausnir til að bæta umhverfisgögn og lífsferilsgreiningar. Þetta tengist aðgerð 5.1.15 Nýting stafrænna lausna til að auka sjálfbærni í byggingariðnaði. Aðgerðin snýst meðal annars um að nýta BIM, hugbúnað fyrir lífsferilsgreiningar og önnur stafræn verkfæri til að einfalda ferla og auka nákvæmni gagna. Jafnframt er lögð áhersla á samhæfingu milli Norðurlandanna í gagnasöfnun og notkun stafrænnar tækni.
Aðlögun að loftslagsbreytingum
Á dagskránni verður einnig fjallað um aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum, þar á meðal kortlagningu og vöktun loftslagsáhættu. Umfjöllunin styður við aðgerðir 5.3.9 Hönnun fyrir aðlögun að loftslagsbreytingum og 5.3.7 Líffræðilegur fjölbreytileiki í hinu byggða umhverfi. Aðgerð 5.3.9 miðar að gerð leiðbeininga um aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum, með áherslu á náttúruvá, kortlagningu helstu áhættuþátta og náttúrumiðaðar lausnir. Aðgerð 5.3.7 styður þessa nálgun með því að stuðla að mælanlegri aukningu líffræðilegrar fjölbreytni í byggðu umhverfi, enda verður samhengi loftslagsaðlögunar og vistkerfa sífellt mikilvægara við skipulag og hönnun mannvirkja framtíðarinnar.
Yfirvöld og sérfræðingar frá Norðurlöndum
Meðal fyrirlesara eru fulltrúar mannvirkjayfirvalda frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi, auk leiðandi sérfræðinga úr norrænu atvinnulífi og fræðasamfélagi. Pieter Staelens, yfirmaður sjálfbærrar mannvirkjagerðar hjá DG GROW – framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, flytur lykilfyrirlestur um nýju byggingarvörureglugerðina og stafræna þróun upplýsingakerfa byggingargeirans.
Opið öllum sem hafa áhuga á sjálfbærri mannvirkjagerð
Viðburðurinn er ætlaður stjórnvöldum, sveitarfélögum, hönnuðum, verktökum, fræðasamfélaginu, hugbúnaðarþróunaraðilum og öðrum sem koma að sjálfbærri þróun hins byggða umhverfis.
- Dagsetning: 30. september 2026
- Viðburður: Nordic Climate Forum for Construction 2026
- Tími: 09:00–13:00 (UTC)
- Staðsetning: Á netinu
- Tungumál: Enska