Search
Close this search box.

LCA-vinnustofa 02.06.2023: Upptökur af erindum

Eins og mörgum er kunnugt um þá hefur sérfræðingshópur verið starfandi síðan í ágúst 2022 með það hlutverk að vinna tillögur að samræmdri aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga (LCA) fyrir íslenskar byggingar.

Í LCA-hópnum sitja: Helga María Adólfsdóttir (fulltrúi FRV, Mannvit), Alexandra Kjeld (Grænni byggð/Efla), Ólafur Ögmundarson (HÍ), Viggó Magnússon (HR/Arkís) og Lilja Sigurrós Davíðsdóttir (VSÓ ráðgjöf).

Vinnan er hluti af aðgerð 5.1.3. í aðgerðaáætlun Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð sem unnin var á vegum Byggjum grænni framtíð.

Þann 2. júní 2023 boðuðu HMS og Byggjum grænni framtíð til vinnustofu í þeim tilgangi að kynna fyrstu drög að tillögum hópsins og fá innlegg frá hagaðilum til áframhaldandi úrvinnslu.

Hátt í 50 sérfræðingar frá allri virðiskeðju mannvirkjageirans mættu á vinnustofuna bæði í raunheimum og á Teams. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir þátttökuna.

Í upphafi vinnustofunnar voru haldin tvö erindi, fyrst var farið yfir stöðuna á innleiðingu LCA í Danmörku og svo voru tillögur LCA-hópsins kynntar:

Í framhaldinu fóru fram umræður meðal þátttakenda vinnustofunnar; einn hópur var á Teams og fjórir hópar í raunheimum (þ.e. í sal Verkfræðingafélags Íslands). Þar gafst hagaðilum tækifæri til að ræða tillögur hópsins en umræðustjórar á hverju borði voru aðilar úr LCA-hópnum. Mikilvæg sjónarmið komu þar fram sem hópurinn mun taka til úrvinnslu áður en lokatillaga hópsins fer í samráð í haust.