Search
Close this search box.

Vinnustofa 02.06: Samræmdar LCA-greiningar fyrir íslenskar byggingar (aðgerð 5.1.3.)

Eins og mörgum er kunnugt um þá hefur sérfræðingshópur verið starfandi í vetur með það hlutverk að vinna tillögur að samræmdri aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga (LCA) fyrir íslenskar byggingar.

Í LCA-hópnum sitja: Helga María Adólfsdóttir (fulltrúi FRV, Mannvit), Alexandra Kjeld (Grænni byggð/Efla), Ólafur Ögmundarson (HÍ), Viggó Magnússon (HR/Arkís) og Lilja Sigurrós Davíðsdóttir (VSÓ ráðgjöf).

Vinnan er hluti af aðgerð 5.1.3. í aðgerðaáætlun Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð sem unnin var á vegum Byggjum grænni framtíð.

HMS og Byggjum grænni framtíð boða nú til vinnustofu í þeim tilgangi að kynna fyrstu drög að tillögum hópsins og fá innlegg frá hagaðilum til áframhaldandi úrvinnslu.

Skráning: Fer fram hér.

Tími: 2. júní 2023, kl. 9-12

Staður: Salur Verkfræðingafélags Íslands, Engjateig 9 og á Teams fyrir þau sem eiga ekki heimangegnt

Dagskrá:

  • 9:00 – 9:50

Harpa Birgisdóttir, prófessor við Álaborgarháskóla: Innleiðing LCA í Danmörku.

Helga María Adólfsdóttir, Mannvit, hópstjóri LCA-hóps: Drög að tillögu sérfræðingshóps um samræmda aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga fyrir íslenskar byggingar.

  • 9:50-10:00

Hlé

  • 10:00-12:00

Umræður meðal þátttakenda: Tillögur hópsins ræddar, sjónarmiðum hagaðila safnað.

Við hvetjum sem flest til að taka þátt og hafa áhrif á þróun lífsferilsgreininga í íslenskri mannvirkjagerð.