Nordic Climate Forum for Construction (NCFC) er árleg norræn ráðstefna þar sem byggingar- og mannvirkjayfirvöld, stefnumótendur, sérfræðingar og markaðsaðilar koma saman til að samræma nálganir og ræða leiðir til að draga úr loftslagsáhrifum byggingariðnaðarins. HMS heldur utan um NCFC þetta árið í samstarfi við norræn yfirvöld, en ráðstefnan fer fram 30. september 2026.
Á NCFC 2025, sem haldin var í Kaupmannahöfn, var sjónum meðal annars beint að því að gera lífsferilsgreiningar (LCA) skilvirkari og aðgengilegri og efla stafræna innviði. Á ráðstefnunni í ár verður fjallað um tæknilega og stefnumótandi þætti sem skipta máli fyrir opinbera stjórnsýslu og byggingariðnaðinn í heild sinni á tveimur meginsviðum:
- Lífsferilsgreiningar (LCA): hámarksgildi á losun bygginga, stafræn þróun og gögn.
- Loftslagsaðlögun og viðnámsþróttur: hvernig samþætta megi loftslagsáhættu í hönnun og rekstur mannvirkja, og hvernig regluverk getur stutt við slíka nálgun.
Umræður og vinnustofur á NCFC 2026 munu styðja við framgang nokkurra aðgerða í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030, einkum úr köflum 5.1 um Lífsferilsgreiningar og 5.3 um loftslagsvæna byggð og landnotkun. Fyrir Ísland er mikilvægt að geta byggt á reynslu og þekkingu norrænna sérfræðinga og yfirvalda sem hafa glímt við þessi viðfangsefni um árabil. Nánari upplýsingar um aðgerðirnar má finna á þessari heimasíðu undir flipanum Aðgerðir: www.bgf.is/adgerdir.

Sameiginleg nálgun sem skilar árangri
Með NCFC 2026 er markmiðið að færa umræðu um lífsferilsgreiningar og loftslagsaðlögun nær framkvæmd: þar sem sameiginleg norræn nálgun styður við þróun regluverks, skilgreiningu viðmiða og notkun samræmdra gagna. Með því skapast betri forsendur fyrir raunverulegum samdrætti í losun og aukinni seiglu í hinu byggða umhverfi á Norðurlöndum.
Hluti dagskrár NCFC 2026 verður opinn almenningi. Skráning fer fram hér:
Meira um samstarfsverkefni Norðurlandanna, Nordic Sustainable Construction: