Search
Close this search box.

Rafmagnsknúnum vinnuvélum fjölgar meira en dísilknúnum á milli ára

Greining á samsetningu vinnuvélaflota byggingariðnaðarins fyrir árin 2021 og 2022 liggur nú fyrir. Auk þess hefur verið komið í ferli að Vinnueftirlitið taki saman árlega þessi gögn og sendi til Orkustofnunar og verkefnastjóra Byggjum grænni framtíð. Er aðgerð 2.1. í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð þar með lokið.

Hér fyrir neðan má sjá töflu og súlurit sem endurspegla samsetningu vinnuvéla í byggingariðnaði, iðjuverum, flugvöllum og fiskvinnslum eftir aflgjöfum á árunum 2021 og 2022. Ekki er enn hægt að taka út vinnuvélar byggingariðnaðarins sérstaklega.

Helstu niðurstöður sýna:

– Vinnuvélum í byggingariðnaði, iðjuverum, flugvöllum og fiskvinnslum fjölgar um 740 stk, úr 1.348 í 2.088, eða um 55% milli áranna 2021 og 2022, sem þykir nokkuð mikið.

– Rafmagnsknúnum vinnuvélum fjölgar um 84% milli ára (um 414 stk).

– Dísilknúnum vinnuvélum fjölgar um 43% milli ára (um 321 stk).

– Gasolíu og bensín knúnum vinnuvélum fækkar á milli ára.

Frekari upplýsingar og forsendur:

– Heildarfjöldi skráðra vinnuvéla á Íslandi í lok árs 2021 var 29.325. Heildarfjöldi skráðra vinnuvéla á Íslandi í lok árs 2022 var 31.122. Fjölgunin nam 5,8% á milli ára.

– Tölfræðin hér fyrir neðan endurspeglar vélar í byggingariðnaði, iðjuverum, flugvöllum og fiskvinnslum, en húsalyftur og katlar voru tekin út. Í þessum flokki vinnuvéla var 55% aukning á milli ára, sem telst vera mikil. Helsta skýringin gæti til dæmis verið fólgin í uppsveiflu á vinnumarkaði og lágum vöxtum.

– Aflgjafar sem flokkast undir ,,Annað” eru aflgjafar sem eru ranglega skráðir í kerfum Vinnueftirlitsins eða enginn aflgjafi til staðar.